Monday, December 10, 2007
vóóóó

vóóóó hvad er langt sídan ad ég bloggadi!!

En hédan er allt bara gott ad frétta. Mamma, pabbi, amma og afi voru hér í 10 daga og hofdu thad gott med okkur. Thau komu audvitad med fullt af mat og gotteríi fyrir okkur Marc og Úlfi fannst alls ekki leidinlegt ad fá ommu og afa í heimsókn thví thau voru dugleg ad gefa honum alls konar saetindi.. ss kex, jógúrt, súkkuladi og fleira. En vid fórum med theim í rosalega flottan kastala og gistum thar eina nótt. Herbergid okkar Marc var duplex, eda á tveimur haedum.. ekkert smá flott! Daginn eftir keyrdum vid svo til Andorra en thangad hafdi ég aldrei komid! Thad var alveg aedislegt ad fá alla í heimsókn og núna býd ég bara spennt eftir ad sjá thau um jólin!

Annars kemur Marc ekki um jólin heim til Íslands med mér. Hann tharf ad vinna greyid. En vid aetlum ad reyna ad koma heim um páskana.

Vid erum búin ad skreyta rosa fínt hérna hjá okkur. Ljósaseríur, jólatré og alls konar jólafígúrur og mér finnst thetta aedi! Marc hefur ekki verid alinn upp vid almennileg jól (ekki svona eins og vid thekkjum thau) og thví fannst mér vid verda ad skreyta og hafa thad huggó.

Úlfur staekkar og staekkar.. Aetli hann sé ekki um 12 kíló núna hehe.. en hann er ennthá bara barn (5 mánada) og thví ennthá ad laera. Piss og kúk standid er svona nokkurn veginn komid en hann reyndar pissar inni á naeturnar og thegar ad vid skiljum hann eftir einan heima. Tharf ad venja hann af thví!

Adaldaemid med hann sem tharf ad laga er ad hann glefsar svo mikid.. Hann er bara ad leika sér svona oftast en nú er hann ordinn frekar stór og thví er thetta ekkert laust! Hann tharf á smá karakterbreytingu ad halda!

En núna er ég bara á fullu í laerdómi thví "jólaprófin" byrja 7. janúar.. sem er frekar omurlegt fyrir mig! Skil ekki af hverju vid klárum thetta bara ekki fyrir jól! En jaeja.. madur getur ekki fengid allt!

 





Monday, October 22, 2007
Port Aventura HERE I COME!!!!

Næstu helgi munum við halda í okkar árlegu ferð í Port Aventura skemmtigarðinn... úff hvað það verður gaman!!! Núna er verið að halda upp á halloween og allt í garðinum undir því þema.. tónlist.. skreytingar.. starfsfólk! Verður í 3 skipti sem ég fer á halloween þarna! Spurning hvort að Margréti takist að draga mig í fallturninn en eftir síðasta skipti þá held ég ekki!! hahahaha.. svo er rússibaninn yndislega skemmtilegur og svo er nýr rússibani sem ég hef ekki prófað.. á að vera einn sá hraðasti í heiminum eða eitthvað svoleiðis. Jiii hvað ég hlakka til.. er alveg með kitl í maganum!

En Marc er að fara í vinnuferð í þessari viku.. reyndar bara ein nótt. En verður samt skrýtið! Eins gott að hann kaupi eitthvað fallegt handa mér í Sevilla og Malaga hehehe... :)

Annars fór ég til dýralæknisins hér á föstudaginn með Úlf. Við vorum reyndar það heppin að akkúrat þegar að við vorum að fara út um dyrnar þá kúkar greyið.. (það tekur á að reyna að kenna honum þetta allt!) nema að ég ætla að fara að þrífa þetta nema þá sé ég eitthvað hvítt og langt... fór að pæla hvort að það gæti verið að hann hefði étið teygju frá mér og þetta væri restin.. svona komu gáfurnar aftur og ég fékk þetta væga sjokk!! þetta var ormur!!!!!!!! og alveg 10 cm á stærð! (hrollur)

Ég pakkaði orminum í elshúspappír og í plastpoka og setti hann í veskið mitt (mmmmmm...) og skundaði til dýralæknisins sem hló að mér fyrir að koma með þetta ógeð til hennar. Ég vildi bara vera viss og tók með þau sönnunargögn sem ég átti til! En Úlfurinn fékk bara ormalyf og það á að drepa þetta alveg.. lítið mál! :)

Annað sem dýralæknirinn sagði mér.. Úlfur er grindhoraður og þarf að borða meira.. ég sem er búin að vera að kalla hann "gordo" (feiti) (er góð mamma) :) En semsagt núna er þessi 6 kílóa (er ´buin að þyngjast um 3 síðan að við fengum hann) hvolpur minn að innbyrða 400 grömm af hundamat á hverjum degi!!

Hann fékk að fara í bað um helgina.. set myndir af því kannski seinna... honum fannst það EKKI gaman!!!

jæja farin að læra.. :)

LATER!





Thursday, October 18, 2007
Lífið í dag..

Jæja... eftir nokkra mánaða vesen er ég loks orðin háskólanemi!! :) En málið er að þegar að mér, og fleira góðu fólki, tókst loksins að koma mér þarna inn (þurfti að breyta lögunum á spáni fyrst hehe) þá var árið þegar hafið og fólk búið að sitja í tímum í um 3 vikur! Þannig að nú er ekkert annað í boði en að bretta upp ermar og skálmar og hella sér í námið! Fyrir ykkur sem ekki vitið þá er þetta fyrsta árið mitt í Private investigation ;) seinna liggur svo leiðin í afbrotafræði...

Annars er allt gott að frétta af litlu fjölskyldunni. Úlfur stækkar og stækkar en eitthvað virðist hann ekki vera að ná því að maður á ekki að halda í sér í göngutúrum og pissa svo um leið og maður kemur inn aftur!! Hann fær að fara í fyrsta baðið sitt þessa helgi... erum búin að fjárfesta í shampoo og hárnæringu fyrir greyið... sérstakar vörur fyrir hvolpa! úff hvað verður gott að fá loksins að baða hann (það mátti ekki áður vegna bólusetningar). Hann er nú algjört krútt.. sjáiði bara..

TinyPic image

 

Marc er búinn í með sumarfríið sitt og skólinn byrjaður hjá mér þannig að það er að komast smá rútína á lífið hér. Hann vinnur til hálf 7 og ég er í skólanum alltaf seinnipartinn og ekki búin fyrr en 21 eða 22 þannig að inni í miðri viku sjáumst við bara þessa 2-3 tíma á kvöldin! :( En ég er ekki í tímum á föstudögum svo þetta eru bara 4 dagar sem eru svona leiðinlegir.

En endilega.. ef það er einhver enn að lesa þetta.. látið mig endilega vita..





Sunday, October 07, 2007
Enn stækkar fjölskyldan! :)

Ég er orðin snillingur í að þrífa piss og kúk!! Marc greyið er nú alveg húsvanur... hehe

Síðustu helgi bættist einn í fjölskylduna.. ÚLFUR!!

Fórum í svona animalshelter og ætluðum að leyta að litlum hundi.. tík.. fórum svo út með hund.. og stóran! hann er samt algjört yndi.. finnst ekkert skemmtilegra en að hlaupa um og naga beinið sitt. Tekur aðallega tíma að fá hann til að pissa á rétta staði! en hva.. hann er bara baby ennþá!

Annars er lífið hér bara æðislegt.. Gæti ekki verið sáttari við lífið eins og er.

Er að horfa á Casper the friendly gosth hehe.. þannig að ég er hætt í bili.. en set inn mynd fyrir ykkur af barninu!

 

TinyPic image





Friday, September 14, 2007
Uppgötvun!!!

Ég hef komist að því að ég er alveg hörkubloggari!! þeir bara gerast ekki betri! hehe..

Annars er bara skýjað hér í Barcelona í augnablikinu! ég þarf að hafa ljósin kveikt heima hjá mér klukkan eitt á hádegi.. frekar spes. Ég og Marc fórum í Ikea í gær og ég fór hamförum í kertadeildinni! Ekkert betra en kertaljós. En þessar Ikea verslanir eru svo stórar að maður er alveg búinn á því þegar að maður loksins kemst að kassanum! Við komum heim klukkan 22 í gærkvöldi og hrundum í sófann.. algjörlega búin á því bæði 2!

Pabbi hans Marcs varð sjötugur á þriðjudaginn og því förum við út að borða núna á sunnudaginn með allri fjölskyldunni.. á einum flottasta veitingastað Barcelona. Er mjög spennt en hef ekki HUGMYND í hverju ég á að fara! :)

Ég á 2 ættleidda hamstra sem er mjög svo fyndnir.. einn bítur reyndar en bara ef hann er í búrinu. En nú langar okkur í lítinn hvolp! Höfum verið að pæla í þessu hvort að okkur langi í kettling eða hvolp en málið er að við erum með parket og við höfum heyrt að kisur og parket og sófar fari ekkert voðalega vel saman! Vitum ekki alveg hvaða tegund okkur langar í en mér hefur alltaf fundist Cavalier king tegundin alveg svakalega krúttleg.

jæja.. ætla að fara að gera eitthvað sniðugt.. ganga kannski frá öllum kertunum sem ég keypti! hahahaha...





Friday, August 24, 2007
hóst hóst hóst..

Merkilegt hvað mér tekst að verða oft kvefuð hér á sumrin.. þetta var líka svona síðasta sumar.. víst eitthvað loftræstingakerfunum að kenna...:(

En annars er ég bara í sumarfríi, ekki mikið að gerast í kringum mig. NEMA AÐ ÉG ER FLUTT!!! :) eða er að flytja.. ég og Marc ætlum bara að fara að búa.. hlakka rosa til að geta skilað minni íbúð.  Fórum upp í fjöllin um daginn og höfðum það gott í litlu fjallaþorpi þar sem Marc bjó í níu mánuði þegar að hann var í hernum. Drakk vatn úr krananum þar!! merkilegt alveg.. hehehe.. og vatnið jafn gott og heima á Íslandi.

En annars er ég frekar einmana.. allir á Íslandi!!! En þau fara nú að fara að koma aftur hingað. Eins gott bara..

Er orðin aðdáandi Supermodelo hérna á Spáni.. finnst endalaust gaman að fylgjast með öllu dramanu... þær hætta ekki að gráta!!!

Jæja Supermodelo að byrja.. leeeeeeiterr





Sunday, August 05, 2007
Hiti hiti hiti hiti

Ojjjjj var búin að skrifa færslu hér og svo bara gerðist eitthvað og allt datt út!! þoli ekki þegar að svoleiðis gerist!

En fór heim um daginn.. yndislegt!!! Ástæðan fyrir heimkomunni: brúðkaup Hjördísar og Einars.

Dagurinn var æðislegur.. Athöfnin í kirkjunni ofsalega falleg.. og Hjördís geislaði í fallega kjólnum!! Merkilegt hvað maður hugsaði mikið aftur í tímann þarna í kirkjunni.. þegar að allt dramað í kringum þau var í gangi.. sem við tókum öll þátt í held ég.. :) æi hvað mér finnst samt langt síðan.. margt breyst síðan þá!

Veislan var æði og dönsuðum við lengi lengi lengi.. ég var alveg búin á því í fótunum en fór þó samt í pínu stund niður í bæ eftir á með Palla, Önnu og Salvari. Fannst voðalega gaman að hitta ykkur öll!!! :) Það er ekki langt í jólin! :)

En fékk líka voða gott að borða heima hjá pabba og mömmu! grill og fínerí.. og auðvitað líka fisk hjá ömmu! mmmmmm... íslenskur matur.. ó hvað ég hafði saknað þín! Taskan min þyngdist um 7 kíló heima af mat sem ég tók með mér út aftur! :)

En hér er bara hiti og meiri hiti.. mér líður best á kvöldin þegar að sólin er sest.. þá eru svona sirca 27 gráður.. á daginn svitnar maður bara við það að hugsa! ótrúlega heitt!

En endilega kommentið hér því mér finnst svo gaman að lesa þau.. :)

karen





Thursday, June 14, 2007
Hallóhalló..

Jámm ég er á lífi og meira að segja búin að bæta við einu ári í aldurinn minn! 23 krakkar.. jeminn finnst þetta frekar há tala! En afmælið mitt var voða næs.. kom fullt af fólki frá fullt af löndum!! Svo gaman að eiga svona international vinahóp. Fólk var frá Íslandi auðvitað, Bandaríkjunum, Filippseyjum, Spáni, Mexíco og Hollandi.. og ef að allir hefðu mætt þá hefðu Svíþjóð, Bretland og Argentína bæst í hópinn! Mér finnst þetta rosa gaman! Svo er stefnan sett bara á ferðalag around the world og snýkja út fría gistingu í hverju landi!! hahaha.. gæti það líklega miðað við fjöldann af fólki sem ég hef kynnst frá því fyrir 2 árum.

En ég er byrjuð að vinna á fullu! Svaka gaman.. finnst eitthvað svo fyndið að mæta í mínum sumarkjól og sandölum og reyna að kenna hörðustu jakkafataklæddu buisnessköllunum ensku. Undarlegt hvað spánverjar ruglast á he og she!!! En ég hef kynnst fullt af fólki í gegn um þetta og búin að ná mér í allskyns nýt sambönd svona fyrir framtíðina! :) Fæ reglulega gjafir frá nemendum mínum.. blævængi, ávexti, ilmvatnsprufur, dvd myndir.. ohh svo gaman að þessu.

Ryða Gós og Erna voru hér um daginn í hátt í 2 vikur! Hörku stuð á okkur enda ekki við neinu öðru að búast! Festumst meðal annars í Tarragona heila nótt. Fengum einn góðan matsölustaðseiganda til að hafa opið fyrir okkur til klukkan 5 um morguninn og hann dældi í okkur áfenginu.. var í því að leyfa okkur að prófa hinar ýmsu tegundir af víni og skotum. Endaði í salsakennslu og meiri vitleysu..

Mexíco vinum mínum í húsinu mínu fannst nú ekki leiðinlegt að hitta fleiri íslendinga og þeir tóku okkur með sér út eitt kvöldið það sem við fengum bara VIP treatment.. Eftir svaka danstarnir héldum við svo öll heim á leið í morgunmat til Jans sem fór á undan til að búa til einhvern týpískan mexícóskan morgunmat handa liðinu!

Mamma og Pabbi eru hér núna.. ekki samt hér hjá mér heldur í Lloret de mar, sem er í um klukkutíma fjarlægð frá Barcelona. Fór að heimsækja þau um síðustu helgi og stefnan er tekin á að fara aftur þessa helgi. Pabbi minn varð nefnilega fimmtugur á þriðjudaginn. Merkilegt nokk... Hann lýtur svoooooo ekki út fyrir það! En þau eru bara að hafa það kósý á sólarströndinni en koma svo hingað til mín á sunnudaginn og ætlum við að fara saman á IL DIVO tónleikana.. verður án efa æði!!!

En eitt svona fyrir ykkur... Hér er orðið SVOOOOOO heitt.. er búin að pakka sænginni því það er ekki séns að sofa með sæng lengur! bara ekki til í dæminu! Er virkilega farin að kvíða júlí og ágúst!!!





Sunday, June 10, 2007
JIBBÍÍ

Bara svona stutt bara til að minna ykkur á hvaða dagur er í dag!! :)

 

HÚN Á AFMÆLI Í DAG

HÚN Á AFMÆLI Í DAG

HÚN Á AFMÆLI HÚN KAREN

HÚN Á AFMÆLI Í DAG!!!!

 

Takk fyrir takk takk





Tuesday, May 15, 2007
YES I DO!

Er byrjuð að kenna spánverjum ensku.. þau eru ágæt þessi grey! Bilaðist samt úr hlátri í gær þegar að kona um sextugt fór að útskýra fyrir mér skandal þar sem "two people were fucking" og að núna kallaði hún manninn sinn alltaf cocksucker!! Semsagt kennarinn sem var á undan mér með þann hóp hafði kennt þeim að blóta og önnur ansi skemmtileg orð á ensku.. Þessi kona hafði glósað þetta allt of fór að segja mér frá "the faggott" og "the cunt" sem búa nálægt henni. Ég pissaði næstum því á mig.. þetta var bara of fyndið.

En náði prófinu mínu bara með stæl.. var fimmta af 90 nemendum! :) nokkuð sátt bara.. ekki annað hægt held ég.

Ég er komin með skype fyrir ykkur sem eruð svo tæknivædd.. karen.johannsdottir

Mamma og Tanja komu hingað í heimsókn um daginn. Fékk FULLT af góðgæti með þeim :) Fisk, harðfisk, egils appelsín, nammi, grænmetisostinn minn og ársbyrgðir af pítu og grænmetissósu. Amma sendi mér fiskinn og harðfiskinn og smjörva og full fullt af nammi.. takk amma mín! :) Við gerðum nú ýmislegt meðan að þær voru hér. Búðirnar voru auðvitað skoðaðar en fórum líka í túristarútuna og sáum næstum alla borgina. Borðuðum ofsa gott öll kvöld og fórum að sjá ljósashowið á Placa Espanya. Ég græddi ansi mikið af góðum hlutum í þessari ferð þeirra! :)

Langar ÓTRÚLEGA MIKIð að skella mér yfir til Mallorca fyrir Jónsmessuhátíðina.. er eiginlega bara að hugsa um að fara.. spurning hvort að ég geti ekki fundið ódýrt far yfir. Annars get ég náttúrulega bara tekið sundsprett og synt.. hvernig er það?? er hægt að teyga báta?? :)

Svo er bara vika í það að ég fái heimsókn.. Gyða og Erna ætla að koma að heimsækja mig.. vívívívíví.. Beyonce bíður eftir ykkur! Svo verður farið í Port Aventura og ströndin tekin með trompi.. :) Læt þær alfarið sjá um búðarrölt þessa daga.. haahahaha verð bara að vinna á meðan! :) 





Next Page



karensisco
Já... Hvað get ég sagt?? Karen heiti ég og er bara ósköp venjuleg 22 ára Kópavogsstelpa! Thessa stundina bý ég í Barcelona... Ekki slaemt thad!! En ég á síma eins og flest allir adrir og meira ad segja símanúmer sem ad er (+34)663-663-431! Heimilisfangid mitt er líka:

Karen Jóhannsdóttir

Calle Girona 79 5-2

08009 Barcelona

Spain



   









Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed